Friday, November 7, 2008

Gaman er að segja frá því að við erum ennþá á lífi, sprellandi og spriklandi. Við erum núna komin með eitthvað mjög töff og nýmóðins dót, en það kallast internetið og fæst í litlum kveikjaralöguðum kössum. Þessi tækni er greinilega mikið hernaðarleyndamál, og þarf að fylla út allskonar skjöl um hjúskaparstöðu og eignir, skólavist og skapgerð bara til að geta verið neitað um hana, sé maður ekki með innlendan ábyrgðarmann með sömu og fleiri skjöl, helst eldri en 20 ára (skjölin semsagt); best væri ef þau væru frá tímum (og með undirskrift) Franz Josephs I.

Það er því mikil gleði hér á bæ að komast loksins almennilega á netið, enda höfum við legið á því!
Við uppgötvuðum Ebay fyrir alvöru í gær og erum fallin í þá gryfjuna (Ásta þar í fararbroddi). Innan fáeinna daga gætum við orðið hamingjusamir eigendur að danskri design-ljósakrónu, espressóvél, antik píanóstól og tyrknesku teppi svo eitthvað sé nefnt. Allt á nokkrar evrur stykkið! Ástæðan fyrir þessu Ebay brjálæði er samt sú að við þurfum að yfirgefa Grinzinghöllina og finna okkur minni og ódýrari íbúð sem fyrst. Okkur finnst því bara eins gott að byrja snemma að leita að lágmarkshúsgögnum á vægu verði, því eins leiðinlegt og það er getum við ekki stungið af með kóngadótið hennar Elísabetar.

1 comment:

Anonymous said...

Þetta internet er alveg dásamlegt!
Gaman að sjá að loksins loksins var nýtt blogg mætt á svæðið:D

Mikið lýst mér vel á þessi e-bay kaup ykkar, en getið þið ekki komið eihverju kóngadóti undan, ég meina hún Elísabet er farin að reskjast, svo haldið þið að hún taki eftir þó eitthvað af hlutunum hennar hverfi...? :)