Saturday, January 17, 2009

Komin heim í kotið á ný!

Þegar við komum heim eftir jólafríið beið okkar það skemmtilega verkefni að tvímelda okkur í landið. Það þarf sem sagt að melda sig hjá yfirvöldum ef maður dvelur lengur en þrjá daga í
Austurríki og síðan aftur (hjá öðru embætti) ef það er á planinu að vera lengur en þrjá mánuði. Seinni meldingin verður að sjálfsögðu að eiga sér stað innan þriggja mánaða frá fyrstu meldingu og að sjálfsögðu tókst okkur að seinka þessu það oft að við misstum af hinum heilaga fresti.
Við ætluðum nú aldeilis að kippa þessu snöggvast í lag og drulluðumst á skrifstofuna sem var staðsett í hverfi með ískyggilega háu númeri. Í fyrstu gekk allt vonum framar, maðurinn sem afgreiddi okkur var meira að segja næstum hjálplegur. Við mættum með skjalasafn Mostgasse 6 með von um að geta brætt sérhvert embættismannahjarta sem á vegi okkar yrði en þegar Ernir framvísaði skólapappírunum sínum (ásamt vottorði á fimm tungumálum um námslánasamþykkt frá sænska ríkinu) varð maðurinn óöruggur og kallaði á yfirmann sinn.
Æj æj hugsuðum við bæði þegar fram kjagaði gígantísk kona í appelsínugulu tjaldi. Ánægjubros færðist yfir varir hennar þegar hún leit á pappírana hans Ernis og um leið og hún opnaði munninn gerðum við okkur grein fyrir að hér á ferð var engin venjuleg kona.
Við vorum lent í skrifstofukonu frá helvíti!

"Das ist kein ordentliches Studium" stundi hún áfergjulega og lét sig hverfa ofan í holuna sína aftur. Maðurinn brosti vandræðalega og hvarf á eftir skessunni. Að neðan heyrðust ógurleg öskur og inn á milli mátti greina setningar í líkingu við; "Das sind nur die Regeln!!!" og "Sie müssen genauer anschauen!!!". Hinn fyrrum hressi maður snéri niðurlútur til baka og útskýrði fyrir Erni að ef hann gæti ekki sýnt fram á það að eiga gífurlegt magn af peningum á reikningnum sínum þá kæmi die FREMDPOLIZEI og tæki hann!


Við bíðum spennt.

5 comments:

Hibi said...

haha

gott ad vita ad sumir lenda i enn meiri vanda en eg :)

en samt leitt ad heyra med frau appelsinu-hitler.

Nei thad finnst öllum voda gaman ad eg thekki erni. svo byrja allir ad tala finnsku og eg dett ut ur samraedunum. einmanalegt, but true ...

En sellokvedjur til vinarbraudanna! Moi moi :)

Arngunnur Árnadóttir said...

HAHA HAHAHAHA.
Úff. Þýsk / austurrísk bjúrókrasía...maður getur ekki annað en elskað hana!

tóta said...

ég hélt appelsínugult væri einmitt litur vinalega fólksins... :)

Rósa Birna said...

Hahah!
Þið eruð svo góðir sögumenn!
Alltaf gaman að fylgjast með ævintýrum ykkar..
Óskandi að þau væru fleiri bara!

Halla Oddný said...

Ég elska þetta blogg. Vona að Fremdpolizei fari ekki að áreita ykkur!